Ísland fær 13.800 skammta af bóluefni lyfjafyrirtækisins AstraZeneca í febrúar, að því gefnu að Lyfjastofnun Evrópu afgreiði umsókn fyrirtækisins um skilyrt markaðsleyfi á föstudag.
Þetta kemur fram í skriflegu svari heilbrigðisráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu RÚV.
Greint var frá því um helgina að AstraZeneca gæti ekki staðið við fyrstu afhendingaráætlun bóluefnisins og verður færri skömmtum því dreift á fyrsta ársfjórðungi en fyrirhugað var.
Fjöldi skammta frá AstraZeneca gæti dregist saman um 60% en fyrirtækið stefndi að því að dreifa um 80 milljón skömmtum til Evrópusambandsríkja fyrir lok mars. Nú er þó útlit fyrir að þeir verði ekki fleiri en 31 milljón.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur þrýst á stjórnendur AstraZeneca að standa við fyrirheit sín. Hefur sambandið hótað því að banna útflutning á bóluefni til ríkja utan sambandsins.
RÚV greinir frá því að til stóð að Norðmenn fengu 1,1 milljón skammta frá AstraZeneca í næsta mánuði. Þar sem Ísland fái 6,8% af skömmtum Noregs má ætla að samkvæmt upphaflegri áætlun ættu að koma tæplega 75 þúsund skammtar hingað til lands í febrúar. Hefði það nægt til að bólusetja um 37 þúsund manns.