Byggja nýtt nútímabókasafn í miðbæ Hafnafjarðar

Samkomulagið var undirritað á dögunum. Hér má sjá þau Sigurjón …
Samkomulagið var undirritað á dögunum. Hér má sjá þau Sigurjón Ólafsson, sviðsstjóra þjónustu- og þróunarsviðs, Sigríði Kristinsdóttur, fyrrum sviðsstjóra stjórnsýslusviðs og núverandi sýslumann á höfuðborgarsvæðinu, Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra, Ágúst Bjarna Garðarsson formann bæjarráðs, Guðmund Bjarna Harðarson framkvæmdastjóra Fjarðar og Harald Reyni Jónsson. Ljósmynd/Aðsend

Samkomulag á milli Hafnafjarðarbæjar og 220 Fjarðar var undirritað á dögunum þess efnis að bærinn fái afhent til leigu eða kaups 1.200-1.500 fermetra húsnæði undir nýtt bókasafn í nýjum miðbæjarkjarna sem mun rísa á Strandgötu 26-30 og tengjast verslunarmiðstöðinni við Fjarðargötu 13-15.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ. Fjárfestingafélagið 220 Fjörður hyggst hefja framkvæmdir á um 6 þúsund fermetra verslunar- og þjónustubyggingu á Strandgötu 26-30. Þjónustukjarninn mun geta hýst alla kjarnaþjónustu, s.s. matvöruverslun, pósthús, heilsugæslu, bankaþjónustu, apótek, veitinga- og kaffistaði og nútímalegt bókasafn.

Samkvæmt samkomulaginu mun Hafnarfjarðarbær fá sinn hluta af húsnæðinu afhentan á tímabilinu 2023-2026 og reisa þar nútímalegt bókasafn sem opnar á fjölbreyttari þjónustu, miðlun og samveru.

Svara ákalli um aukna þjónustu og verslun

„Með þessari framkvæmd erum við bæði að svara ákalli íbúa um aukna þjónustu og verslun og aukinni eftirspurn eftir verslunar- og þjónustuhúsnæði í Hafnarfirði. Um er að ræða mjög metnaðarfullt verkefni sem mun stórauka verslunar- og þjónusturými í miðbænum auk þess að bæta aðgengi íbúa að verslun og þjónustu í heimabyggð. Viðræður eru þegar hafnar við stóra verslunarkeðju um opnun á matvöruverslun í húsinu. Með nýbyggingunni náum við loksins að tengja betur Strandgötuna og Fjarðargötuna og tryggja þannig betur flæði og umferð um miðbæinn. Húsið er hornsteinn uppbyggingar í miðbænum. Það eru spennandi tímar fram undan og vonandi getum við hafist handa strax á þessu ári,“ segir Guðmundur Bjarni Harðarson, framkvæmdastjóri Fjarðar.

„Það verður mikil lyftistöng fyrir Hafnarfjörð þegar byggingin verður risin og framboð fjölbreyttrar starfsemi heldur áfram að aukast í bænum. Sveitarfélagið er einnig að taka spennandi skref með því að ákveða að flytja bókasafnið í þetta nýja húsnæði og stuðla þannig að frekari þróun og eflingu á þjónustu þess,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar.

Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við nýbygginguna hefjist á árinu 2021. Samhliða hefst vinna við að móta og vinna með hugmyndir fyrir þjónustu og nýjungar á nýju og nútímalegu bókasafni þar sem m.a. verður leitað í hugmyndabrunn íbúa, starfsfólks og annarra hagsmunaaðila.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert