Maðurinn sem lést í Sundhöll Reykjavíkur á fimmtudag hét Guðni Pétur Guðnason og var 31 árs. Hann lætur eftir sig foreldra og tvo bræður.
Greint var frá þessu í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær.
Guðni Pétur starfaði í geðþjónustu og var með geðfötluðum skjólstæðingi sínum í lauginni, eins og hann gerði jafnan daglega.
Guðni Heiðar Guðnason, faðir Guðna Péturs, sagði í samtali við mbl.is á sunnudag að sonur hans hefði legið í sex mínútur á botni sundlaugarinnar. Endurlífgunartilraunir báru ekki árangur og var hann úrskurðaður látinn á Landspítala.