Nýtt upphaf! er yfirskrift janúarráðstefnu Festu sem hefst klukkan 9 og stendur til kl 12. Þetta er jafnframt heiti á átaki á vegum World Economic Forum sem hefur það markmið að einblína á mikilvægi þess að horfa til sjálfbærrar uppbyggingar samfélaga í kjölfar kórónuveirufaraldursins en huga þurfi að umhverfinu og taka tillit til hagsmuna helstu hagaðila.
Á ráðstefnunni verða kynntar niðurstöður nýrrar rannsóknar Deloitte á viðhorfi stjórnenda 300 stærstu fyrirtækja landsins um aðgerðir fyrirtækja í loftslagsmálum.
Markmiðið með könnuninni er að varpa ljósi á hvernig stjórnendur eru að takast á við loftslagsáskorunina. Enn fremur geta niðurstöðurnar nýst í frekari stefnumörkun og umræður um loftslagsmál hér á landi.
DAGSKRÁ:
· Tómas N. Möller formaður Festu og Hrund Gunnsteinsdóttir framkvæmdastjóri Festu –
· Nicole Schwab Co – head Nature Based Solutions @World Economic Forum - Hvað felst í hinu Nýja upphafi – The Great Reset
· Halla Tómasdóttir forstjóri B Team - Hvað er þitt hlutverk í Nýju upphafi?
· Pallborðsumræður - Leiðtogar úr íslensku atvinnulífi taka stöðuna í panelumræðum – .
· AÐILD Festu 2021 kynnt til leiks
· Michele Wucker metsöluhöfundur og forstjóri Gray Rhino & Company - Hvaða Gráu nashyrningar verða á vegi okkar á árinu?
· John McArthur, forstjóri miðstöðvar um sjálfbæra þróun hjá Brookings stofnuninni – Miklar umbreytingar: Hröðum framgangi heimsmarkmiðanna
· Sasja Beslik, forstjóri sjálfbærra fjárfestinga hjá J. Safra Sarasin Bank – Draumafjárfesting 2035
· Leiðtogar úr íslensku atvinnulífi taka stöðuna
· Eru íslenskir stjórnendur á grænni vegferð? Rakel Eva Sævarsdóttir verkefnastjóri Deliotte kynnir niðurstöður könnunar Deloitte – Græna vegferðin, könnun meðal stjórnenda stærstu fyrirtækja landsins um aðgerðir fyrirtækja í loftslagsmálum
· Pallborðsumræður - Leiðtogar úr íslensku atvinnulífi taka stöðuna!
· Hvernig gekk að innleiða hringrásarhagkerfið á árinu? – Fimm fyrirtæki settu sér hringrásarmarkmið í upphafi árs 2020 – hvernig gekk?
· Elísabet H. Brynjarsdóttir hjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri Frú Ragnheiðar – Sjálfbær velferð – hugvekja