Lögreglan vill ná tali af manni

Þekkir þú manninn?
Þekkir þú manninn? Ljósmynd/Aðsend

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi mynd vegna máls sem er til rannsóknar hjá embættinu og er hann vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögregluna í síma 444 1000.

„Ef einhverjir þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu einnig vinsamlegast beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert