Allt að sjö þúsund í óleyfisíbúðum

Áætlað er að um 5.000-7.000 einstaklingar búi nú í um 1.500 til 2.000 óleyfisíbúðum, þ.e. í húsnæði sem skipulagt er undir atvinnustarfsemi en nýtt til íbúðar fyrir einstaklinga.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ, þar sem vitnað er í samantekt vinnuhóps sem skipaður var til að safna upplýsingum um fjölda óskráðra íbúða og leiðir til þess að fá eigendur óskráðra íbúða til að skrá þær opinberlega. Skýrslan er hluti af yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við gerð lífskjarasamningana í apríl 2019 um umbætur í húsnæðismálum.

Þar segir að ástæðurnar geti verið margþættar en skortur á leiguhúsnæði og há leiga sé líkast til veigamesta skýringin.

„Þá eru dæmi um að starfsmannaleigur og atvinnurekendur komi starfsmönnum sínum fyrir í óleyfisbúsetu sem hafa jafnvel ekki raunverulegt val um búsetu. Þá spilar jafnframt inn í að hluti erlends verkafólks sem dvelst tímabundið á landinu vegna vinnu kýs hreinlega að búa tímabundið í eins ódýru húsnæði og mögulegt er þar sem ekki eru gerðar sambærilegar kröfur til húsnæðisins af hálfu viðkomandi og ef um framtíðarbúsetu væri að ræða,“ segir í tilkynningunni.

Óvissan skapar hættu þegar vá steðjar að

Í skýrslunni segir að vegna ákvæða laga um skráningu lögheimilis og aðseturs er ekki heimilt að skrá búsetu í atvinnuhúsnæði nema í undantekningartilvikum. Þar af leiðandi liggja ekki fyrir upplýsingar um búsetu þeirra sem búa í óleyfisíbúðum. Sú óvissa skapar hættu þegar vá steðjar að, líkt og eldsvoði eða náttúruhamfarir, og gerir viðbragðsaðilum erfitt fyrir í björgunarstörfum.

Sú tillaga er lögð fram í skýrslunni að horfa til þess að heimila tímabundið aðsetursskráningar í skilgreindu atvinnuhúsnæði sem mætir ákveðnum kröfum. Með því er einstaklingur með skráð lögheimili ótilgreint í viðkomandi sveitarfélagi en aðsetur í viðkomandi atvinnuhúsnæði. Þá er hægt að halda betur utan um þá aðila sem búa í atvinnuhúsnæði, en slíkt er mikið öryggisatriði hvað t.d. varðar viðbragðsaðila.

Þá leggur vinnuhópurinn til að endurskoðaðar verði heimildir til fjöldaskráninga lögheimilis í íbúðarhúsnæði með það í huga að setja takmörk á slíkar skráningar. Tilgangur þess væri að koma í veg fyrir að margir séu skráðir í sömu íbúð án þess að búa þar í raun og fá sem réttasta mynd af raunverulegri búsetu, m.a. fyrir viðbragðsaðila.

Húsnæðismál í ólestri

„Skýrslan staðfestir þann veruleika sem við okkur hefur blasað allt of lengi. Húsnæðismál eru í ólestri, það er skortur á íbúðum og fólk í neyð þarf að leita í ósamþykkt húsnæði. Það hefur veruleg áhrif á lífgæði fólks og ekki síst barna sem þurfa félagslegt samhengi við skólahverfi og tómstundir,“ er haft eftir Drífu Snædal, forseta ASÍ.

Að búa í mannsæmandi húsnæði er einn af hornsteinum lífsgæða og brestir á því er ógn við heilsu og jafnvel líf fólks. Þessi skýrsla er brýning til okkar allra og ekki síst stjórnvalda að spýta í lófana og tryggja öllum mannsæmandi húsnæði á viðráðanlegum kjörum,“ er enn fremur haft eftir Drífu.

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, forseti ASÍ. Ljósmynd/ASÍ
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka