Guðni Einarsson
Sjúkratryggingar Íslands hafa auglýst eftir viðræðum við aðila, fyrirtæki, félög eða stofnanir um að taka við rekstri fjögurra hjúkrunarheimila. Þau eru Hraunbúðir í Vestmannaeyjum, Hulduhlíð á Eskifirði, Uppsalir á Fáskrúðsfirði og Öldrunarheimili Akureyrar sem rekur Hlíð og Lögmannshlíð.
Á þessum heimilum eru samtals 244 hjúkrunarrými, 12 dvalarrými og 46 dagdvalarrými, að því er fram kemur í Morgunbaðinu í dag.
Í auglýsingu Sjúkratrygginga segir að æskilegt sé að rekstraraðilar séu sjálfseignarstofnanir eða þar sem hagnaður er endurfjárfestur í þágu starfseminnar. Einnig að greiðslur til nýs eða nýrra rekstraraðila muni byggjast á núgildandi samningum um þjónustuna.
Bæjarstjórn Vestmannaeyja gerði nýlega sameiginlega bókun þar sem lýst var áhyggjum af þeirri óvissu sem ríkir um framtíðarrekstrarfyrirkomulag dvalar- og hjúkrunarheimilisins Hraunbúða. Jafnframt lýsti bæjarstjórnin undrun „á viðbragðs- og úrræðaleysi Sjúkratrygginga Íslands“.