„Ég fagna snöfurmannlegu framtaki hæstvirts menntamálaráðherra Lilju Alfreðsdóttur varðandi talsetningu á erlendu efni á streymisveitum. Ég tek undir orð ráðherra sem segir óboðlegt að stórveldi eins og Disney nýti ekki íslenskar talsetningar og þýðingar á streymisveitunni Disney+ og hvetur hún fyrirtækið til að gera bragarbót á því og ég tek undir þá hvatningu,“ sagði Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, á Alþingi í dag.
Hún og Helga Signý Kristjánsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, gerðu ákvörðun Disney þess efnis að bjóða ekki upp á íslenskan texta eða talsetningu á efni streymisveitunnar Disney+ að umtalsefni undir liðnum störf þingsins.
Báðar hvöttu þær ráðherra til að huga að öllum og bentu á að allt að 16% þjóðarinnar eru heyrnaskert og ná því ekki að fylgjast með útsendu efni nema það sé textað.
„Það hefur áhrif á samfélagsþátttöku þessa fólks að geta til dæmis ekki fylgst með stjórnmálaumræðu og öðru sem er í gangi í þjóðfélaginu og í fjölmiðlum í beinni útsendingu,“ sagði Helga Val og hélt áfram:
„Sjónvarpsáhorf er ekki síst félagsleg athöfn. Textun á innlendu sjónvarpsefni gagnast einnig mun stærri hópi en heyrnarskertu fólki því að hún auðveldar fólki með þroskahömlun að njóta áhorfs, styður við læsi barna og gagnast jafnframt eldra fólki og fólki með annað móðurmál við að læra íslenskt mál.“
Halla Signý sagði að mikil áhersla væri lögð á læsi barna sem hefði farið hnignandi og benti á að textun efnis gæti eflt læsi barna.
„Í byrjun faraldurs var vel staðið að textun á sjónvarpsefni fyrir heyrnarskerta. Þá var ánægjulegt að sjá táknmálið sýnilegt. En betur má ef duga skal og er því mikilvægt að nýta þá reynslu sem fékkst af þessu, að halda áfram á sömu braut. Óskastaðan væri sú að við stjórnmálamenn gætum sagt „hakúna matata“ í þessum málum, en þangað til er það okkar að þrýsta á þetta réttlætismál,“ sagði Halla Signý.
Helga Vala skoraði á menntamálaráðherra að stjórnvöld veiti fjölmiðlum sem sjónvarpa íslensku efni, hvort sem um er að ræða fréttaefni eða annað efni, stuðning þannig að hægt sé að nota róbóta, eins og er annars staðar um heiminn, til að texta á rauntíma það efni sem sjónvarpað er.
„Þannig tryggjum við mannréttindi allra, líka þeirra sem búa við skerta heyrn.“