Alls eru tíu manns í framboði til póstkosningu Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir þingkosningar í haust.
Póstkosning Framsóknar í Norðvesturkjördæmi verður haldin dagana 16. febrúar til 13. mars og kosið verður um fimm efstu sæti á lista flokksins.
Í framboði eru eftirfarandi:
- Stefán Vagn Stefánsson, forseti sveitarstjórnar í Skagafirði í 1. sæti
- Guðveig Eyglóardóttir, sveitarstjórnarmaður í Borgarbyggð í 1.-2. sæti
- Halla Signý Kristjánsdóttir, alþingismaður í Bolungarvík í 1.-2. sæti
- Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, formaður SUF í 2. sæti
- Iða Marsibil Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar í Vesturbyggð í 2.-3. sæti
- Gunnar Tryggvi Halldórsson, sveitarstjórnarmaður Blönduósi í 3. sæti
- Friðrik Már Sigurðsson, verkefnastjóri og sveitarstjórnarfulltrúi, Húnaþingi vestra í 3.-4.sæti
- Gunnar Ásgrímsson, háskólanemi á Sauðárkróki í 5. sæti
- Ragnheiður Ingimundardóttir, verslunarmaður í Strandabyggð í 5.-6. sæti
- Tryggvi Gunnarsson, skipsstjóri frá Flatey í 3.-5. sæti