Alls bárust 13 umsóknir um embætti skrifstofustjóra skrifstofu sjúkrahúsa og sérþjónustu í heilbrigðisráðuneytinu en umsóknarfrestur rann út 1. febrúar síðastliðinn.
Þriggja manna hæfnisnefnd sem starfar samkvæmt reglum um ráðgefandi nefndir sem meta hæfni umsækjenda um embætti við Stjórnarráðið, mun nú meta hæfni umsækjenda og skila greinargerð með niðurstöðum sínum til heilbrigðisráðherra, að því er heilbrigðisráðuneytið greinir frá.
Eftirfarandi eru nöfn þeirra sem sóttu um embættið:
Formaður hæfnisnefndarinnar sem metur hæfni umsækjenda er Guðríður Þorsteinsdóttir lögfræðingur og fyrrverandi skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu. Aðrir nefndarmenn eru Bjarni Smári Jónasson, forstjóri sjúkrahússins á Akureyri og Kristín Helgadóttir, mannauðsstjóri heilbrigðisráðuneytisins.