Edda Rut Björnsdóttir, markaðs- og samskiptastjóri Eimskipa, segir fyrirhugaða Sundabrú hafa óveruleg áhrif á starfsemi félagsins, þar sem hún muni liggja innan við athafnasvæði fyrirtækisins.
„Okkur líst vel á þessar tillögur, teljum þær skynsamlegar og að þær þjóni hagsmunum samfélagsins vel,“ segir Edda Rut í skriflegu svari við fyrirspurn mbl.is.
Starfshópur um Sundabraut leitaði umsagnar stjórnenda Eimskipa, sem hafi þá hitt hópinn og gert grein fyrir sjónarmiðum fyrirtækisins.
„Þá horfum við jákvæðum augum á að það er talið mikilvægt að bæta umferðartengingar til og frá hafnarsvæðinu samhliða brúarframkvæmdunum,“ segir Edda Rut.
Ekki eru þó allir hagsmunaaðilar á sama máli um möguleg áhrif framkvæmdanna.
„Þetta hefur veruleg áhrif á okkar starfsemi og er mikið rask,“ segir Birkir Hólm Guðnason forstjóri Samskipa í Morgunblaðinu í dag.
„Það sem var sagt í tilkynningu um að það væru ekki stórvægilegar athugasemdir frá hagsmunaaðilum er bara ekki rétt.“
Fjallað er nánar um málið í Morgunblaðinu í dag.