Skoðuðu Perlufestina með vasaljós á lofti

Vetrarhátíð er nú í fullum gangi víða á höfuðborgarsvæðinu. Í kvöld komu börn og foreldrar saman í vasaljósaleiðsögn með leikjum í styttugarðinum Perlufestinni, sem er staðsett í suðvesturhorni Hljómskálagarðsins.

Börnin skoðuðu stytturnar með vasaljós í hönd og fylgdust vel með ef marka má meðfylgjandi mynd sem ljósmyndari mbl.is náði af áhugasömum þátttakendum í kvöld.

Vetrarhátíðin hófst 4. febrúar og lýkur henni á sunnudaginn, þann 7. febrúar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert