Ökunám stafrænt frá upphafi til enda

Markmiðið er að einfalda ökunámsferlið, fækka snertiflötum milli stofnana og …
Markmiðið er að einfalda ökunámsferlið, fækka snertiflötum milli stofnana og bæta til muna þjónustu við nemendur og ökukennara. mbl.is

Ákveðið hefur verið að fyrir árslok verði umgjörð fyrir almennt ökunám orðin stafræn frá upphafi til enda. Tekur það til umsókna, ökunámsbóka, upplýsingagáttar fyrir nemendur og ökukennara, ökuskóla, prófa og útgáfu ökuskírteina.

Markmiðið er að einfalda ökunámsferlið, fækka snertiflötum milli stofnana og bæta til muna þjónustu við nemendur og ökukennara. Gert er ráð fyrir því að annað ökunám og ökunám til aukinna ökuréttinda fylgi síðan í kjölfarið, segir á vef Stjórnarráðsins.

Verkefnið verður unnið í nokkrum áföngum sem fylgja þeirri tímaröð sem ökunemar fara gegnum ökunámsferlið. Í fyrsta áfanga verður því unnið að nýju rafrænu umsóknaferli. Vinna við það er hafin hjá Samgöngustofu, sýslumannsembættunum og Stafrænu Íslandi. 

Í öðrum áfanga verður rafræn ökunámsbók og tenging hennar við ökunema, ökukennara, ökuskóla og alla þá aðila sem tengjast þessum miðpunkti ökunámsins.

Þriðji og síðasti áfanginn felst í að gera ferlið í kringum próftöku og útgáfu skírteina stafrænt ásamt allri umsýslu í kringum það.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert