Tveir unnu fimm milljónir

Tveir heppnir áskrifendur Lottó skiptu með sér fyrsta vinningi í útdrætti kvöldsins og hlýtur hvor þeirra rétt tæpar fimm milljónir króna í vinning.

Tveir miðahafar skiptu með sér bónusvinningnum og hlýtur hvor þeirra tæpar 685 þúsund krónur í sinn hlut. Annar miðinn var í áskrift en hinn miðinn var keyptur á N1 á Húsavík.

Einn miðahafi var með allar tölur réttar í réttri röð í Jóker og hlýtur hann 2 milljónir króna í vinning. Miðann keypti hann á heimasíðunni lotto.is.

Fjórir voru með fjórar réttar tölur í réttri röð og fá fyrir það 100 þúsund krónur hver. Þrír miðanna voru í áskrift en fjórði miðinn var keyptur í Olís Ánanaustum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert