Dúi J. Landmark hefur verið ráðinn verkefnastjóri miðlunar hjá Landgræðslunni. Um er að ræða nýtt starf í fræðslu- og kynningarmálum.
Dúi lærði framleiðslu sjónvarps- og fjölmiðlaefnis auk ljósmyndunar í EFET-skólanum í París frá 1986-1990 og útskrifaðist úr markaðs- og útflutningsfræði frá HÍ 2003. Hann hefur einnig fjölbreytta reynslu úr fjölmiðlun og efnisframleiðslu sem sjálfstæður framleiðandi og hefur framleitt og leikstýrt margskonar efni fyrir sjónvarpsstöðvar og almennan markað.
Dúi hefur til langs tíma stundað leiðsögn með erlenda ferðahópa og starfaði á árunum 2001-2013 sem leikstjóri og framleiðandi fyrir franskar sjónvarpsstöðvar.
Landgræðslan hefur nú starfað í 114 ár að því að viðhalda og vernda gróður og jarðveg og tryggja sjálfbæra nýtingu lands.
„Vægi þessara málaflokka hefur aldrei verið jafn augljóst og nú, og því vill Landgræðslan sem þekkingar- og þjónustustofnun efla miðlun og upplýsingagjöf til almennings og hagaðila,“ segir í tilkynningu frá Landgræðslunni.
Þar segir einnig að hjá Landgræðslunni starfi um 60 starfsmenn að jafnaði auk sumarstarfsfólks, höfuðstöðvar hennar eru í Gunnarsholti á Rangárvöllum auk starfsstöðva á Egilsstöðum, Húsavík, Hvanneyri, Sauðárkróki og Reykjavík.