Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið hreindýrakvóta fyrir 2021 að fengnum tillögum frá Umhverfisstofnun. Heimilt verður að veiða allt að 1.220 dýr á árinu, 701 kú og 519 tarfa.
Veiðitími tarfa er frá 1. ágúst til 15. september, en þó getur Umhverfisstofnun heimilað veiðar á törfum frá og með 15. júlí. Veiðitími kúa er frá 1. ágúst til 20. september.
Fyrstu tvær vikur veiðitímabilsins er veiðimönnum gert að forðast í lengstu lög að fella mylkar kýr svo draga megi eftir megni úr áhrifum veiðanna á kálfa. Þess í stað eru veiðimenn eindregið hvattir til að veiða eingöngu geldar kýr. Er í þessu sambandi bent á hlutverk og skyldur leiðsögumanna við að aðstoða og leiðbeina veiðimönnum við val á bráð.
„Undanfarin veiðitímabil hef ég lagt ríka áherslu á að veiðimenn verði eindregið hvattir til þess að hlífa mylkum kúm fyrstu tvær vikur veiðitímans. Veiðitölur sýna að sú hvatning hefur skilað árangri. Mikilvægt er að viðhalda þessum árangri þó svo veiðiráðgjöf stofnana ráðuneytisins geri ráð fyrir að heimilt sé að veiða hreinkýr frá 1. ágúst næstkomandi,“ er haft eftir Guðmundi Inga Guðbrandssyni, umhverfis- og auðlindaráðherra, í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.
Veturgamlir tarfar eru alfriðaðir og miðast tarfaveiði því við tarfa sem eru tveggja vetra og eldri. Óheimilt er að veiða kálfa.
Heimildirnar eru veittar með fyrirvara um að ekki verði verulegar breytingar á stofnstærð fram að veiðum sem kalli á endurskoðun veiðiheimilda.