Kiwisun gert að fjarlægja fullyrðingar

Notkun ljósabekkja hefur verið á undanhaldi hér á landi undanfarin …
Notkun ljósabekkja hefur verið á undanhaldi hér á landi undanfarin ár. Getty Images/iStockphoto

Neytendastofa hefur bannað sólbaðsstofunni Kiwisun að birta fullyrðingar þess efnis að 3UV-ljósin í ljósabekkjum stofunnar verndi húðina gegn bruna, auki endorfín og hjálpi til við að jafna húðina, sem og að græni liturinn á ljósinu geti dregið úr streitu og veiti afslöppun og hugarróandi reynslu.

Í tilkynningu frá Neytendastofu segir að borist hafi ábending vegna kynninga Kiwisun á virkni ljósabekkja fyrirtækisins, og að í svörum Kiwisun við fyrirspurn Neytendastofu hafi komið fram að „félagið væri ekki að fullyrða neitt sem ekki hafi áður verið rannsakað og sannað“ og að fullyrðingar um upplifun af græna ljósinu byggðu einnig á reynslu viðskiptavina. Svörunum hafi þó ekki fylgt nein gögn til staðfestingar fullyrðingunum.

Komst Neytendastofa að þeirri niðurstöðu að ekki væri tilefni til aðgerða vegna fullyrðingar um að 3UV-ljós geti leitt til aukinnar framleiðni D-vítamíns í líkamanum. Aðrar fullyrðingar félagsins taldi Neytendastofa ósannaðar og veita rangar upplýsingar um helstu einkenni þjónustunnar. Neytendastofa hefur því bannað Kiwisun að birta fullyrðingarnar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert