Upplýsingafundur almannavarna

Upplýsingafundur almannavarna. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Upplýsingafundur almannavarna. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Ljósmynd/Almannavarnir

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar klukkan 11:00 í dag. 

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn fara yfir stöðu mála varðandi framgang Covid-19-faraldursins hér á landi.

Gestur fundarins verður Jón Pétur Jónsson, yfirlögregluþjónn og sviðsstjóri landamærasviðs embættis ríkislögreglustjóra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert