Lýst eftir eiganda kofa

Kannast þú við kofann?
Kannast þú við kofann? Ljósmynd/Lögreglan

Lögreglan á Suðurlandi lýsir á Facebook eftir eiganda kofa sem hefur dottið af palli eða kerru bifreiðar í gærkvöldi.

Um kl. 21:30 í gær fannst brotinn kofi á Suðurstrandarvegi, rétt vestan við Hlíðarvatn. Líklega hefur kofinn verið í betra ástandi skömmu áður, á palli eða kerru.

Sá eða sú sem kannast við að hafa tapað kofanum eða hefur vitneskju um hver á kofann er beðin/n um að hafa samband við lögregluna á Suðurlandi á Facebook eða í síma 444-2000.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert