Heppnaðar afhendingar á Pfizer-bóluefninu eru nærri 99,99% að sögn Albert Bourla, forstjóra fyrirtækisins, í samtali við Fortune. Segir hann að meðal helstu áhyggjuefna fyrirtækisins eftir þróun bóluefnisins hafi verið hvort hægt væri að tryggja afhendingu þess. Íslenska fyrirtækið Controlant sér um gæðaeftirlit við flutning á bóluefninu.
Controlant þróar og framleiðir hug- og vélbúnað sem mælir meðal annars raka, hitastig og staðsetningu og sendir frá sér rauntímaupplýsingar sem hægt er að fylgjast með til að tryggja gæði á viðkvæmum vörum. Eins og fram hefur komið sér fyrirtækið um gæðaeftirlit við flutning og afhendingu bóluefnis Pfizer.
Halda þarf bóluefni frá Pfizer í miklu frosti í flutningum áður en það er hitað fyrir notkun. Hjá fyrirtækinu starfa 130 starfsmenn. Til viðbótar er svo talsverður fjöldi sem vinnur í teymum víða um heim til að fylgjast með vöktunum í rauntíma, svokölluð stjórnstöðvarvöktun.