Jón Baldvin Hannibalsson segir að hann hafi í fyrsta sinn heyrt af ásökunum á hendur honum um sifjaspell í „útvarpi allra landsmanna“, í Morgunútvarpinu á Rás tvö. Þá telur hann að ásakanir á hendur honum um kynferðisbrot eigi allar rætur sínar að rekja til haturs Aldísar Schram, dóttur hans, á föður sínum.
Jón Baldvin segir að varla sé til sú kvenpersóna í fjölskyldu hans sem hann hafi ekki verið sakaður um að hafa kynferðismök við. Hann hafi vissulega heyrt ýmsar ásakanir á hendur sér áður en útvarpsviðtalið fór fram en ekki um sifjaspell.
Hann segist ekki hafa tekið neina ákvörðun um það hvort Aldís yrði nauðungarvistuð vegna geðræns vanda. Hann hafi þó þurft að samþykkja nauðungarvistun vegna mats læknis um að slíkt væri nauðsynlegt.
Þetta er á meðal þess sem Jón Baldvin sagði í skýrslutöku þegar aðalmeðferð í máli hans gegn Aldísi, fjölmiðlamanninum Sigmari Guðmundssyni og Ríkisútvarpinu hófst Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Skýrslutakan er enn í gangi.
Aldís hefur sakað föður sinn um að hafa með ólögmætum hætti farið fram á nauðungarvistun hennar. Í umfjöllun Stundarinnar árið 2019 kom fram að Jón Baldvin hefði sent fjórar beiðnir um nauðungarvistun Aldísar í faxi frá sendiráði Bandaríkjanna. Jón Baldvin sagði að hann hefði vissulega notað bréfsefni sendiráðsins til þess að staðfesta beiðni um nauðungarvistun dóttur sinnar en að beiðni um nauðungarvistun hefði alltaf komið frá læknum. Hann hefði einfaldlega gripið það bréfsefni sem hendi var næst til þess að staðfesta nauðungarvistun.
Það að lögregluyfirvöld hafi ákveðið að skrá staðfestingu hans á beiðnum um nauðungarvistun Aldísar sem aðstoð við erlend sendiráð sagði Jón Baldvin að hafi líklega verið mistök lögreglu. Hann beri ekki ábyrgð á því.
Sumarið 2019 stefndi Jón Baldvin Aldísi vegna ummæla hennar í Morgunútvarpinu 17. janúar sama ár. Jón Baldvin gerir ekki fjárkröfur á hendur Aldísi heldur krefst þess að ummælin, níu úr Morgunútvarpinu og ein af Facebook, verði dæmd dauð og ómerk.
Sigmari er stefnt fyrir fern ummæli úr þættinum 17. janúar en Jón Baldvin krefur hann um 2,5 milljónir króna.
Í viðtalinu kom fram að ekki hefði náðst í Jón Baldvin áður en viðtalið fór fram. Jón Baldvin segist ekki vita til þess að samband hefði verið haft við hann fyrir fram. Lögmaður Sigmars sýndi þó skjáskot úr síma Sigmars af smáskilaboðum sem hann sendi í sameiginlegan farsíma Jóns Baldvins og eiginkonu hans áður en viðtalið fór fram. Jón Baldvin sagðist ekki hafa séð skilaboðin.
„Margt af því sem þar kom fram var ég að heyra í fyrsta skipti á ævinni,“ sagði Jón Baldvin.
Spurður af lögmanni sínum um það hvernig honum hafi orðið við sagði Jón:
„Það er eitt alveg sérstakt. Undir lok viðtalsins heyri ég það að ég á að hafa stundað sifjaspell með dóttur minni á fullorðinsárum hennar þegar hún var vistuð á geðdeild. Þetta hafði ég ekki heyrt áður fyrr en í beinni útsendingu hjá RÚV,“ sagði Jón Baldvin.
„Viðbrögð mín þarna voru nánast þau að ég var varnarlaus, orðlaus. Ég trúði varla mínum eigin eyrum.“
Jón Baldvin sagði frelsissviptingu ekki fara fram vegna geðþóttaákvörðunar einhvers úti í bæ. Lög hafi verið í gildi til ársins 2016 sem skuldbundu aðstandendur þeirra sem veikir væru á geði staðfestu framlengingu sjúkrahúsdvalar og eða jafnvel sviptingu sjálfræðis.
Þá sagði Jón Baldvin að hlýtt hefði verið á milli þeirra feðgina áður fyrr en eftir að hann hefði neyðst til þess að samþykkja nauðungarvistun hennar í nokkur skipti hefði hatur Aldísar farið að beinast að honum. Það sagðist hann skilja vel.
„Ég hef oft velt því fyrir mér, ef þessi lög hefðu ekki verið, hvort það hefði breytt einhverju.“
Aldís er ekki eina konan sem sakað hefur Jón Baldvin um kynferðislega áreitni og ofbeldi. Þannig birtust t.a.m. 23 nafnlausar sögur um kynferðislega áreitni og ofbeldi af hans hálfu frá árinu 1962 til ársins 2018 í febrúarmánuði 2019. Fjórar konur komu fram og sökuðu Jón Baldvin um kynferðislega áreitni og ofbeldi í viðtali við Stundina í janúarmánuði 2019.
Eins og áður segir sagðist Jón Baldvin telja að þessar ásakanir eigi rætur sínar að rekja til haturs Aldísar á honum. Þá sagði hann að „þröngur hópur“ stæði að ásökununum.
Ummæli sem Jón Baldvin fer fram á að dæmd verði dauð og ómerk eru eftirfarandi:
Morgunútvarp, Rás 2, 17. janúar 2019, ummæli viðhöfð af Aldísi:
Facebook, 5. febrúar 2019, höfundur Aldís:
Rás 2, 17. janúar 2019, höfundur og flytjandi Sigmar (Aldís til vara):