Stefnt að mikilli uppbyggingu íbúðarhúsnæðis

Frá Reyðarfirði. Úr safni.
Frá Reyðarfirði. Úr safni. mbl.is/Golli

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkti á fundi sínum í síðustu viku rammasamning við byggingafyrirtækin Hrafnshól og Nýjatún um mikla uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Fjarðabyggð á næstu fimm árum.

Rammasamningurinn er um byggingu allt að 53 íbúða í par- eða raðhúsum á Norðfirði, Eskifirði, Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði á næstu fimm árum. Íbúðirnar verða reistar í nokkrum áföngum á þessu árabili, en gert verður sérstakt samkomulag um hvern áfanga fyrir sig. Miðað er við að byggðar verði hagkvæmar íbúðir sem meðal annars uppfylla skilyrði fyrir almennu íbúðarhúsnæði eða hlutdeildarlánum við fyrstu íbúðarkaup. Áformað er að hefja byggingu húsa á þessu ári á Reyðarfirði, að því er segir á vef Fjarðabyggðar. 

Þar segir enn fremur, að samningurinn kveði einnig á um vilja beggja aðila til að koma á svipuðu samstarfi varðandi uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á Stöðvarfirði og í Breiðdal ef eftirspurn skapast á þeim stöðum.

Auk þessa hafi talsverðum fjölda af lóðum verið úthlutað að undanförnu í Fjarðabyggð til fyrirtækja og einstaklinga sem hyggi á byggingaframkvæmdir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert