Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra auglýsir eftir umsóknum um Lóu - nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina.
Í tilkynningu segir að „hlutverk styrkjanna, sem nú verða veittir í fyrsta sinn, er að styðja við nýsköpun, eflingu atvinnulífs og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni, á forsendum svæðanna sjálfra.
Lóa styður við nýsköpunarstefnu og er liður í breytingum á opinberu stuðningsumhverfi nýsköpunar vegna fyrirhugaðar niðurlagningar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.“
„Lóa mun styðja við og auka slagkraft nýsköpunarverkefna og samstarf aðila um land allt, á forsendum svæðanna sjálfra. Hún helst í hendur við annan mikilvægan stuðning á vettvangi nýsköpunar á landsbyggðinni og í atvinnulífinu, svo sem sóknaráætlun landshlutanna, byggðaáætlun og aðrar svæðisbundnar áherslur. Í þessu aukna samstarfi sem við erum að sjá víða um land felast mikil tækifæri. Við erum að styðja við það,“ Er haft eftir Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra í tilkynningu.
„Heildarfjárhæð styrkja árið 2021 er 100 milljónir króna, en hámarksstyrkur til hvers verkefnis er 20 milljónir króna og er úthlutað til árs í senn. Ráðherra mun skipa matshóp sem fer yfir styrkhæfi umsókna í samræmi við nýsköpunarstefnu og áherslur stjórnvalda. Hópurinn gerir tillögur til ráðherra um veitingu styrkja,“ segir í tilkynningu.