Vantrauststillaga á Pál enn í gildi

Páll Magnússon.
Páll Magnússon. mbl.is/RAX

Formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum segir við Eyjafréttir að vantrauststillaga á Pál Magnússon, sem fulltrúaráðið, lagði fram árið 2018, sé enn í gildi og sé raunverulegt vandamál sem taka þurfi á innan flokksins.

Á aðalfundi kjördæmaráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi á laugardag var tekin ákvörðun um að viðhafa prófkjör við val á framboðslista. Þar sagðist Páll Magnússon sækjast eftir endurkjöri sem oddviti listans, Ásmundur Friðriksson tilkynnti að hann sæktist eftir öðru sæti. Vilhjálmur Árnason sem situr nú í þriðja sæti listans sagðist stefna hærra og þá tilkynnti um framboð sitt á fundinum Eva Björk Harðardóttir, oddviti flokksins í Skaftárhreppi og hótelstýra Hótels Laka.

Eyjafréttir hafa eftir Jarli Sigurgeirssyni, formanni fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum, að vantrauststillagan á Pál sé  raunverulegt vandamál sem taka þurfi á innan flokksins og hafa í huga í þessu prófkjöri sem fram undan er.

„Það vekur sérstakar áhyggjur hjá mér hversu margir Sjálfstæðismenn lýsa yfir þungum áhyggjum af framboði Páls, þar sem fólk óttast áframhaldandi sundrungu og hefur ýmist sagst ekki geta stutt flokkinn, ekki geta unnið fyrir flokkinn eða hreinlega myndu yfirgefa flokkinn vegna þessa,“ segir Jarl í blaðinu.

Páli var vikið úr full­trúaráði sjálf­stæðis­fé­lags­ins í Vest­manna­eyj­um í júní 2018 en hann lýsti ekki yfir stuðningi við lista Sjálf­stæðis­flokks­ins í Vest­manna­eyj­um fyr­ir sveitarstjórnakosn­ing­ar fyrr á árinu heldur studdi Írisi Ró­berts­dótt­ur, odd­vita klofn­ings­fram­boðsins Fyr­ir Heima­ey, sem vann góðan sig­ur og myndaði nýj­an meiri­hluta með Eyjalist­an­um.

Frétt Eyjafrétta

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert