Íslendingur vann 48 milljónir í EuroJackpot

Íslendingur hafði heppnina með sér í kvöld þegar dregið var í EuroJackpot. Hann er einn af sex vinningshöfum sem deila með sér 2. vinningi og fær hver þeirra rúmlega 48,3 milljónir.

Miðinn góði var keyptur hjá Bitanum, Iðavöllum 14b í Reykjanesbæ. Hinir fimm miðarnir voru allir keyptir í Þýskalandi, að því er fram kemur í tilkynningu frá Íslenskri getspá.

Fyrsti vinningur gekk ekki út og flyst því vinningsupphæðin yfir á 1. vinning í næstu viku. Fjórir miðahafar skiptu með sér 3. vinningi og fá þeir rúmar 25,5 milljónir hver. Einn miði var keyptur í Noregi og þrír í Þýskalandi.

Einn heppinn miðahafi á Íslandi var svo með allar réttar tölur í réttri röð í Jóker og hlýtur hann tvær milljónir króna í vinning. Miðinn var keyptur á vefnum lotto.is. Þá voru fjórir með fjórar réttar tölur í réttri röð og fá þeir 100 þúsund krónur í vinning hver. Einn miði var keyptur í Happahúsinu í Kringlunni, einn miðinn var í áskrift og tveir miðar voru keyptir í Lottó-appinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert