Hallur Már -
Píratar fóru fram á það við Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis í dag og fengu samþykkt að nefndin kanni meðferð umsókna þolenda mansals um alþjóðlega vernd. Þetta var gert í kjölfar þeirra spurninga sem mál Uhunoma Osayomore hefur vakið um meðferð á umsóknum hælisleitenda hér á landi.
Í tilkynningu flokksins kemur fram að Pírataflokkurinn: „telur nauðsynlegt að kalla til sérfræðinga frá stofnunum og félagasamtökum sem gjörþekkja málaflokkinn og geta veitt nefndarmönnum heildstæða sýn á vandann. Þannig megi finna lausnir sem tryggja sanngjarna og mannúðlega málsmeðferð fyrir fólk í jafn viðkvæmri stöðu.“
Nú hafa 44 þúsund manns skrifað undir áskorun á stjórnvöld um að endurskoða málið.