Enginn greindist með smit í gær

Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær og einn bíður niðurstöðu mótefnamælingar á landamærunum að sögn Jóhanns K. Jóhannssonar, samskiptastjóra almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra.

Ekki eru birtar tölur á covid.is-vefnum um helgar og segir Jóhann að um bráðabirgðatölur sé að ræða. 

Fjórir greindust með smit á fimmtudag og eru þeir allir í sömu fjölskyldu. Allir voru í sóttkví við greiningu en smitin tengjast landamærunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert