Var ráðinn bani

Karlmanni á fertugsaldri var ráðinn bani í austurborginni um miðnætti í gærkvöld, en tilkynning um málið barst lögreglu kl. 23.57. Áverkar eftir skotvopn fundust á líki mannsins.

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu að málið sé í algjörum forgangi hjá embættinu. Einn sé í haldi vegna rannsóknarinnar.

Greint var frá því fyrr í dag að maðurinn hefði verið af er­lendu bergi brot­inn, en at­vikið átti sér stað í heima­húsi í Rauðagerði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert