Hlutfall háskólamenntaðra á atvinnuleysisskrá hefur hækkað mikið á sama tíma og hlutfall fólks með grunnskólapróf hefur lækkað á atvinnuleysisskrá. Þetta á einkum við um konur. Hlutfall kvenna með háskólapróf á atvinnuleysisskrá hefur farið úr 7% í 33% á 20 árum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í Hagsjá Landsbankans í dag þar sem fjallað er um atvinnuleysi á Íslandi.
Samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar var almennt skráð atvinnuleysi í janúar 11,6% af áætluðum fjölda fólks á vinnumarkaði og hafði aukist úr 10,7% frá því í desember. Um 26.400 manns voru á atvinnuleysisskrá í janúar, þar af um 21.800 atvinnulausir og um 4.600 atvinnulausir í minnkuðu starfshlutfalli.
Atvinnuleysi sem tengist hlutabótaleið var 1,2% og minnkaði milli mánaða. Heildaratvinnuleysi í janúar var því 12,8% samanborið við 12,1% í desember og jókst þannig um 0,7 prósentustig.
„Almennt er reiknað með að atvinnuleysi minnki þegar líður á árið 2021 en sú þróun er auðvitað háð hraða bólusetninga og að tök náist á faraldrinum þannig að landið opnist meira. Okkar möguleikar í því sambandi eru reyndar líka mjög háðir hvernig sama barátta gengur í helstu viðskiptalöndum okkar,“ segir í Hagsjánni.
Á árinu 2000 var fólk með grunnskólamenntun 70% af fjölda á atvinnuleysisskrá. Þá var fólk með háskólamenntun einungis um 7% atvinnulausra.
Á þeim 20 árum sem hafa liðið síðan hefur háskólamenntuðu fólki fjölgað mikið og að sama skapi hafa háskólamenntaðir orðið meira áberandi meðal atvinnulausra.
Á þessum 20 árum hefur hlutfall fólks með grunnskólapróf af atvinnulausum farið stöðugt minnkandi og var það 41% á árinu 2020. Að sama skapi hefur hlutfall háskólamenntaðra aukist mikið og var 26% á síðasta ári. Þetta eru þeir tveir hópar sem mest breyting hefur orðið á varðandi atvinnuleysi á síðustu árum.
Hlutfall háskólamenntaðra meðal atvinnulausra jókst mikið frá 2008 til 2015, úr 12% í 25% en hefur verið nokkuð stöðugt síðan.
„Sé litið á þessa tvo hópa, atvinnulaust fólk með grunnskólapróf og háskólapróf með tilliti til kynja, má sjá að mesta breytingin er meðal kvenna. Á árinu 2000 voru konur með grunnskólapróf 67% atvinnulausra kvenna og konur með háskólapróf 7%.
Á síðustu 20 árum hafa þessir tveir hópar þróast með algerlega gagnstæðum hætti. Hlutfall kvenna með grunnskólapróf af atvinnulausum konum hefur farið sífellt minnkandi og hlutfall háskólamenntaðra kvenna sífellt aukist.
Í fyrra voru atvinnulausar konur með grunnskólamenntun 37% atvinnulausra kvenna og konur með háskólamenntun 33%. Að baki þessara miklu breytinga eru bæði breytingar á stærð hópa hvað menntunarstig varðar og svo miklar breytingar á vinnumarkaði. Á árinu 2000 voru konur með grunnskólapróf hlutfallslega fleiri en karlar meðal atvinnulausra, en mun færri 2020. Þessu er öfugt farið með háskólamenntaða, þar voru konur færri á árinu 2000 en mun fleiri í fyrra sé miðað við hlutfall af hópi,“ segir í Hagsjá Landsbankans.