Þrír voru handteknir í viðamiklum aðgerðum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær í tengslum við rannsókn hennar á manndrápi í austurborginni um síðustu helgi. Farið var í húsleitir í umdæminu og utan þess en við aðgerðirnar naut lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar bæði sérsveitar ríkislögreglustjóra og annarra lögregluembætta.
Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu segir í tilkynningu frá lögreglunni en Fréttablaðið greindi frá því í morgun að sérsveit lögreglunnar hefði verið með viðamiklar aðgerðir á Selfossi í nótt.