Viðar Guðjónsson
Mennirnir þrír sem handteknir voru á Suðurlandi í nótt í tengslum við aðgerðir lögreglu vegna rannsóknar á manndrápsmáli í Rauðagerði veittu enga mótspyrnu. Þetta herma heimildir mbl.is.
Hinir handteknu voru Íslendingur auk tveggja útlendinga sem voru staddir í sumarhúsi á Suðurlandi. Mennirnir hafa stöðu sakbornings en ekki liggur fyrir hvort þeim verði haldið lengur en í sólarhring. Eigandi hússins var einnig borinn út í járnum en var fljótlega sleppt.
Aðgerðirnar voru umfangsmiklar og voru húsleitir gerðar víða. Kölluð var út sérsveit lögreglu auk þess sem lögregluembætti á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi tóku þátt í aðgerðunum.
Eins og fram hefur komið var albönskum manni ráðinn bani með skotvopni fyrir utan heimili sitt á laugardagskvöld.