Laun menntaðra kvenna svipuð og minna menntaðra karla

Frá kvennafrídegi árið 2018. Miðað við gögn á Tekjusagan.is eru …
Frá kvennafrídegi árið 2018. Miðað við gögn á Tekjusagan.is eru karlar með grunnmenntun með svipuð laun og háskólamenntaðar konur. mbl.is/Eggert

Heildartekjur kvenna í sambúð með BS-gráðu voru svipaðar heildartekjum karla í sambúð með grunnmenntun árið 2019. Þá voru heildartekjur karla í sambúð um 40% hærri en einhleypra karla en heildartekjur kvenna í sambúð voru um 15% hærri en einhleypra kvenna.

Þetta er á meðal þess sem kemur fram á vefnum tekjusagan.is en hann var nýverið uppfærður með gögnum frá árinu 2019. Á vefnum er mögulegt að skoða um 700 þúsund myndir, byggðar á upplýsingum um kyn, hjúskaparstöðu, aldur, barnafjölda, tekjutíund og fleiri þáttum.

Meðal upplýsinga sem hægt er að sjá á vefnum eru:

  • Almennt hækkuðu ráðstöfunartekjur á árinu 2019, einkum í 2.-5. tekjutíund.
  • Ráðstöfunartekjur hjóna og sambúðarfólks voru rúmlega 100 þúsund krónum hærri á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni og hefur munurinn aukist á síðustu árum.
  • Eigið fé fjölskyldna á landsbyggðinni er umtalsvert lægra en á höfuðborgarsvæðinu vegna lægra fasteignaverðs.
  • Ráðstöfunartekjur fólks yfir 75 ára hafa hækkað mun meira en annarra hópa á árunum 2012-2019.
  • Ráðstöfunartekjur hjóna- og sambúðarfólks yfir 66 ára, án fjármagnstekna, voru í fyrsta skipti hærri en hjóna- og sambúðarfólks á aldrinum 25-34 ára á árinu 2019.

Nánar hér. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert