Reykjanesbær samþykkti framkvæmdaleyfi

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur samþykkt framkvæmdaleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2.
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur samþykkt framkvæmdaleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2. mbl.is/​Hari

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti í gær framkvæmdaleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2. Áður höfðu allir bæjarfulltrúar í Hafnarfirði og Grindavík samþykkt umsókn um framkvæmdaleyfi.

Beðið er eftir því að Vogar ljúki sinni umfjöllun svo verkefnið komist í framkvæmd, að því er segir í tilkynningu frá Landsneti.

Verkefnið hefur lengi verið í undirbúningi. Um er að ræða nýja 34 km langa 220 kV flutningslínu á milli höfuðborgarsvæðisins og Suðurnesja. Hún mun tryggja meira afhendingaröryggi á Suðurnesjum og opna nýja möguleika í atvinnulífi. Stefnt er að því að hefja framkvæmdir á þessu ári.

Niðurstaðan varð, að loknu nýju umhverfismati, að mæla áfram með lagningu loftlínu að mestu meðfram Suðurnesjalínu 1 og var sótt um framkvæmdaleyfi á þeim grunni.

„Við hjá Landsneti höfum í mörg ár bent á mikilvægi þess að ráðast í framkvæmdir til að bæta raforkuöryggi á Suðurnesjum. Það er ánægjulegt að sjá málið þokast áfram,“ segir Sverrir Jan Norðfjörð, framkvæmdastjóri þróunar- og tæknisviðs, í tilkynningunni.

Fárviðrið sem gekk yfir í desember 2019 hafði mikil áhrif á flutningskerfið og setti ríkisstjórnin á fót átakshóp til að vinna að mikilvægum úrbótum á innviðum landsins. Raforkuöryggi á Suðurnesjum var á meðal mikilvægustu verkefna. „Þetta var áminning um hversu mikilvægt það er í nútímasamfélagi að búa við trausta innviði eins og flutningskerfi rafmagns og brýnt að hefjast handa og tryggja að íbúar og atvinnulíf á Suðurnesjum búi við sama afhendingaröryggi og aðrir landshlutar. Nú í desember síðastliðnum kom svo önnur áminning þegar jarðskjálftar á Reykjanesskaga fóru að aukast á ný,“ segir Sverrir Jan.

Þrjú af fjórum sveitarfélögum á svæðinu hafi þegar afgreitt málið og aðeins sé beðið eftir því að Vogar ljúki sinni umfjöllun. Skipulagsstofnun fór fram á það í sínu áliti að sveitarfélögin sem hlut eiga að máli tækju sameiginlega afstöðu til valkosta og hafa nú þrjú þeirra samþykkt framkvæmdina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert