130 norskir hermenn til landsins

Norðmenn önnuðust loftrýmisgæslu hér á landi í fyrra.
Norðmenn önnuðust loftrýmisgæslu hér á landi í fyrra. Ljósmynd/NATO

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland er að hefjast með komu flugsveitar norska flughersins.

Alls munu um 130 liðsmenn norska flughersins taka þátt í verkefninu ásamt starfsmönnum í stjórnstöðvum Atlantshafsbandalagsins í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center) og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Flugsveitin kemur til landsins eftir helgi með fjórar F-35-orrustuþotur og hefur aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli, að því er fram kemur í tilkynningu.

Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum í nokkur skipti á tímabilinu 23. febrúar til 5. mars, ef veður leyfir.

Framkvæmd verkefnisins verður með sama hætti og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland.

Eins og með annan erlendan liðsafla sem dvelur tímabundið hér á landi gilda strangar sóttvarnareglur meðan á dvöl norsku flugsveitarinnar stendur. Framkvæmdin er unnin í samvinnu við embætti landlæknis og aðra sem koma að sóttvörnum hér á landi og í Noregi.

Landhelgisgæsla Íslands annast framkvæmd verkefnisins í samvinnu við Isavia. Ráðgert er að loftrýmisgæslunni ljúki í lok mars.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert