Markaðssvið Keilis – miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs, hefur ákveðið að veita auglýsingafé sínu í aðra átt en að miðlum Sýnar næstu misserin.
Þetta er gert „í ljósi nýbirtra upplýsinga er varða líkamssmánun og skeytingarleysi starfsmanna gagnvart umræðunni“, að því er kemur fram í yfirlýsingu.
„Garðurinn vex þar sem þú vökvar hann. Lítilsvirðing og smánun vegna holdafars er samfélagsmein og sorglegt að sjá hana koma frá fagaðilum í heilsurækt. Forvarnir, íhlutanir, rannsóknir og breyttur hugsunarháttur eru umtalsvert skilvirkari leiðir til þess að skila jákvæðum niðurstöðum í vegferð að almennt bættu heilsufari en að smætta þá sem falla ekki í ákveðið útlitslegt form,“ segir í yfirlýsingunni.
Þar kemur fram að menntun sé sjálfstyrking og gífurlega mikilvægur þáttur í starfi Keilis. Hana vilji þau efla í hvívetna.
„Siðareglur Keilis kveða á um að við komum í veg fyrir að í starfi okkar viðgangist hvers kyns óréttlæti. Því kjósum við að leita á önnur, jákvæðari, mið með fjármuni okkar og lýsum yfir einlægri von um að málsaðilar komi fram við alla líkama af aukinni virðingu í framtíðinni.“