Óvissustigi aflýst við Jökulsá á Fjöllum

Brúin yfir Jökulsá á Fjöllum í byrjun mánaðar.
Brúin yfir Jökulsá á Fjöllum í byrjun mánaðar. Ljósmynd/Gunnar Sverrisson

Óvissustigi almannavarna vegna krapastíflu og flóðahættu við Jökulsá á Fjöllum hefur nú verið aflýst.

Þetta ákvað ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Norðurlandi eystra og Veðurstofu Íslands.

Í tilkynningu segir að í síðustu viku hafi vatnshæð í Jökulsá á Fjöllum við Grímsstaði farið lækkandi úr um 420 cm í 300 cm, krapinn sé byrjaður að bráðna og vatn farið að komast greiðlega niður árfarveginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert