Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varaformaður munu í hádeginu í dag halda streymisfund á vegum Sjálfstæðisflokksins þar sem þau munu ræða stjórnmálaviðhorfið, fara yfir næstu mánuði í aðdraganda kosninga í haust og svara fyrirspurnum áhorfenda.
Hægt verður að fylgjast með fundinum í spilaranum hér að neðan.