Starfshópur í heilbrigðisráðuneytinu skoðar mál íslenskra sérnámslækna í Noregi sem þurfa að endurtaka kandídatsárið sitt ef ekkert er að gert. Starfshópurinn fundar í dag en hann hefur fundað einu sinni áður frá áramótum.
„Við erum líka að skoða þetta á vettvangi Norðurlandaráðs að því er almennt varðar grá svæði á milli landa. Þannig að við getum stillt þessa hluti af,“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra um málið.
mbl.is greindi frá því síðastliðinn miðvikudag að íslenskir sérnámslæknar sem stunda sérnám í Noregi sjái fram á að þurfa að endurtaka kandídatsárið sitt vegna breytinga á skipulagi læknisnáms þar í landi. Útlit er fyrir að sama staða komi upp fyrir íslenska sérnámslækna í Svíþjóð innan tíðar.
Í viðtali við mbl.is kallaði Ragnheiður Vernharðsdóttir sérnámslæknir eftir aðgerðum frá stjórnvöldum. Þá sagði hún að staðan geti haft veruleg áhrif á íslenskt heilbrigðiskerfi.
„Þetta er auðvitað svolítið fjölþætt. Þetta lýtur að menntuninni, þetta lýtur að heilbrigðiskerfunum og líka bara að norrænu samstarfi þannig að það eru margir vinklar á þessu og við erum með þetta til skoðunar,“ segir Svandís um málið.
Skipulagi náms í læknisfræði í Noregi var breytt árið 2019 þannig að læknanemar fá nú fullt lækningaleyfi eftir sex ára háskólanám. Sérnámið hefst svo á átján mánuðum af því sem sambærilegt er íslensku kandídatsári. Áður höfðu norskir læknanemar fengið læknaleyfi sitt eftir sex ára nám og átján mánaða „turnus“, sem var talið sambærilegt íslensku kandídatsári. Því komust læknanemar frá Íslandi beint inn í sérnámið, án þess að þurfa að endurtaka kandídatsárið eins þeir þurfa nú að gera.
Spurð hvers vegna ekki hafi verið gripið til aðgerða í þessu máli strax og ljóst var að breytingar yrðu á skipulagi námsins í Noregi segir Svandís:
„Það er starfshópur í þessu sem er að skoða þetta núna.“
mbl.is sendi fyrirspurn á heilbrigðisráðuneyti Noregs annars vegar og heilbrigðisráðuneyti Íslands hins vegar vegna málsins en svör við þeim hafa ekki borist.