Sex vikur eru síðan Guðmundur Felix Grétarsson fékk grædda á sig handleggi í Lyon í Frakklandi. Um er að ræða tímamót þar sem það tekur einmitt sex vikur fyrir sinar og vöðva hans og handleggjagjafans að gróa saman.
„Ég er formlega sameinaður gjafanum mínum,“ skrifaði Guðmundur Felix í færslu á Facebook. Hann ákvað að fagna tímamótunum með pönnukökum með sultu og sýrópi.
Í athugasemdum við færsluna rignir hamingjuóskum yfir Guðmund Felix sem virðist hæstánægður með gang mála.
Today there are exactly 6 weeks from the transplant. That’s significant because that’s the time it takes for tendons and...
Posted by Felix Gretarsson - Coaching on Miðvikudagur, 24. febrúar 2021