Lokað er á skíðasvæðið í Bláfjöllum að beiðni almannavarna eftir að hættustigi var lýst yfir vegna öflugu jarðskjálftahrinunnar sem enn er í gangi á Reykjanesskaga.
„Aðgerðarstjórn höfuðborgarsvæðisins (AST) fer fram á að skíðasvæðum á höfuðborgarsvæðinu verði lokað þegar hættustig almannavarna verður virkjað vegna jarðskjálfta,“ segir í tilkynningu á vef skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins.
Áður hafði komið þar fram að lokað er í Skálafelli vegna snjóleysis.
Aðgerðarstjórn höfuðborgarsvæðisins vill loka skíðasvæðunum til að draga úr áhættu vegna skjálftahrinunnar og koma í veg fyrir að fólk sé á skíðasvæðunum sem eru nálægt upptökum skjálfta.