Ómar Friðriksson
Mikil og flókin vinna á sér stað þessa dagana við að útfæra styttingu vinnuvikunnar hjá vaktavinnufólki sem starfar hjá hinu opinbera.
Stytting vinnuviku dagvinnufólks úr 40 klukkustundum í 36 tók gildi um seinustu áramót en stytting vinnutímans hjá starfsmönnum sem vinna vaktavinnu á að taka gildi 1. maí næstkomandi.
Er það mun flóknara verkefni að sögn talsmanna stéttarfélaganna en mikill fjöldi félagsmanna innan aðildarfélaga BSRB vinnur vaktavinnu, m.a. fjöldi starfsmanna innan heilbrigðisgeirans og í stofnunum velferðarþjónustunnar auk heilu starfsstéttanna, s.s. lögreglumanna, fangavarða og starfsmanna tollsins.
„Þetta er heljarmikið mál af því að það munu eiga sér stað verulegar breytingar á kerfinu og er verið að vinna að því alveg á fullu. Þetta snýst ekki eingöngu um að breyta öllum vaktaplönum því það þarf líka að breyta nánast öllum forritum sem halda utan um launamál o.fl.,“ segir Árni Stefán Jónsson, formaður Sameykis í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.