Ný gervitunglamynd af Reykjanesskaga sem var tekin í gærkvöldi sýnir glöggt hvað er að gerast á svæðinu.
Nota má myndina til að skilja betur þær jarðskorpuhreyfingar sem urðu í jarðskjálftunum á miðvikudaginn.
Fyrr í dag greindi Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvárvöktunar hjá Veðurstofu Íslands, mbl.is frá því að myndin staðfesti það sem jarðskjálftarnir á svæðinu sýna.
Hún sagði að norður-suður sprungur séu að hliðrast eftir Reykjaneshryggnum bæði til austurs og vesturs út frá Fagradalsfjalli.
Engin merki eru um landris eða gosóróa.