Sprengigosið mikla sem varð í Öræfajökli 1362 var öflugasta eldgos Íslandssögunnar og ólíkt flestum eldgosum á sögulegum tíma.
Það er vegna þess hve ákaft það var og eins vegna umfangs gjóskuflóða sem því fylgdu. Gjóskuflóð og gusthlaup voru fyrstu flóðin sem mynduðust í eldgosinu.
Brýnt þykir að aðlaga áhættugreiningu og rýmingaráætlanir í samræmi við það, samkvæmt nýútkominni skýrslu um eldgosið, sem um er fjallað í Morgunblaðinu í dag.