Bláa lónið verður lokað í dag og á morgun vegna skjálftavirkni á Reykjanesskaga.
Öflugur skjálfti af stærðinni 5,2 reið yfir suðvesturhorn landsins klukkan 8:07 og fannst hann víða á Suður- og Suðvesturlandi, austur að Skógum og norður að Hvanneyri. Fleiri eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið.
„Við erum í nánu og góðu sambandi við almannavarnir og fylgjumst grannt með stöðunni með öryggi gesta okkar og starfsfólks að leiðarljósi,“ segir í tölvupósti sem Bláa lónið sendi á gesti sem áttu bókað í lónið um helgina.
Allar byggingar Bláa lónsins voru yfirgefnar eftir að stór skjálfti reið yfir suðvesturhornið á miðvikudag. Bláa lónið var opnað á ný 13. febrúar eftir fjögurra mánaða lokun vegna kórónuveirufaraldursins.