Gunnar Karl Haraldsson, framhaldsskólakennaranemi sem barðist fyrir réttindum fatlaðs fólks, er látinn 26 ára að aldri.
Fram kemur á Vísi að fjölskylda hans hafi greint frá andlátinu á Facebook. Hann lést í morgun eftir baráttu við krabbamein.
Gunnar Karl glímdi við taugasjúkdóm frá unga aldri. Hann vakti athygli árið 2017 þegar hann fór 10 kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu í hjólastól. Heimir Hallgrímsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari í fótbolta, var einn þeirra sem var með í för.