Ef þú ert innandyra þegar jarðskjálfti byrjar– ekki hlaupa af stað.
• Haltu kyrru fyrir, mörg slys verða þegar hlaupið er af stað
• Farðu undir borð eða rúm, verðu höfuð og háls, haltu þér í sterkbyggð húsgögn
• Krjúptu niður í horni við burðarvegg eða í hurðaropi við burðarvegg. Gætið fyllstu varúðar og skoðið flóttaleið út eftir skjálftann.
• Verðu höfuð þitt og andlit með kodda ef þú vaknar við jarðskjálfta
• Haltu þig frá gluggum – þeir geta brotnað
• Láttu þína nánustu vita af þér með SMS þegar jarðskjálftnn hættir
Ef þú er utandyra þegar þú finnur jarðskjálfta – ekki hlaupa inn
• Vertu áfram úti – reyndu að finna skjól til að krjúpa, skýla, halda
• Reyndu að koma þér frá byggingum sem geta hrunið
• Grjóthrun, skriður og snjóflóð geta fallið úr hlíðum og fjalllendi
• Raflínur eru hættulegar ef þær slitna – varist að snerta þær
• Reyndu að komast á opið svæði þar sem byggingar þrengja ekki að
- Farðu frá ströndinni ef þú ert á svæði þar sem hætta er á flóðbylgju
Ef þú ert að keyra þegar þú finnur jarðskjálfta:
• Leggðu ökutæki og stoppaðu. Vegir og brýr geta skemmst í jarðskjálfta
• Hafðu sætisbeltin spennt
• Haltu kyrru fyrir ef þú ert í bíl þar sem hann getur varið þig gegn brotum og braki sem hægt er að verða fyrir í jarðskjálfta – hlustaðu á útvarpið, þar koma jafnan fyrstu upplýsingarnar um jarðskjálftann.