Guðmundur Felix Grétarsson, sem fékk nýverið grædda á sig handleggi í Lyon í Frakklandi, virðist duglegur að borða kartöflurnar sínar ef mið er tekið af mynd sem hann birti á facebook-síðu sinni.
Þar sést hann fá aðstoð við að klippa neglur á fingrum sínum.
Guðmundur dvelur nú á endurhæfingarstöð í Frakklandi og virðist hinn kátasti með naglasnyrtinguna en 23 ár eru liðin síðan neglur á fingrum hans voru síðast klipptar.
Guess who has nails growing like nothing ever happened? #showoff #happy #miracle #winning #transplant #transplantation #lyon #lyonnaise #iceland
Posted by Felix Gretarsson - Coaching on Thursday, March 4, 2021