Tvær tilraunaborholur HS Orku eru staðsettar á Höskuldarvöllum í Trölladyngju. Forstöðumaður viðskiptaþróunar segir að fyrirtækið hafi ekki miklar áhyggjur af holunum, sem voru boraðar árið 2004, þrátt fyrir mögulegt eldgos í nágrenninu.
„Þetta er svæði sem hefur verið horft til með jarðvarmanýtingu í huga í gegnum tíðina en þessar tvær holur eru ekki okkar megináhyggjuefni,“ segir Jóhann Snorri Sigurbergsson.
Tilraunaborholur eru einnig í Krýsuvík en þær eru fjær hættusvæðinu.
Á Vísindavefnum kemur fram að það hafi aldrei gerst að jarðskjálftar hafi skaðað borholur nema í einu tilviki. Þá gekk jarðskjálftasprunga í gegnum borholu í Bjarnarflagi í Kröflueldum. Einnig endaði borun við Vítismó snögglega sumarið 2009 þegar bráðin hraunkvika kom upp af um 2.100 metra dýpi og borinn stóð fastur.
Jóhann Snorri segir ólíklegt að kvika komist í gegnum þessar tilraunaborholur miðað hvar menn sjá kvikuna í dag. Hann segir kvikuna vera á meira dýpi en borholurnar, eða yfir þriggja kílómetra, og að hún sé ekki á alveg sama svæði og holurnar. Þess vegna hafi kvikan engin bein áhrif á starfsemi HS Orku.
Þær borholur fyrirtækisins sem eru ekki tilraunaborholur eru annars staðar en á svæðinu á milli Keilis og Fagradalsfjalls þar sem óttast er að eldgos verði, eða í 10 til 12 km í burtu. Um 20 borholur eru við virkjunina í Svartsengi og eru þær af mismunandi gerð.
HS Orka hefur heldur ekki áhyggjur af áhrifum mögulegs eldgoss á Reykjanesskaga á jarðhitavinnslu fyrirtækisins. „Miðað við það sem menn eru að horfa á núna þá gæti staðsetningin verið verri,“ segir Jóhann Snorri. Engar breytingar hafa sést á jarðhitakerfum vegna jarðhræringanna að undanförnu. Hann segir jarðskjálfta vera nauðsynlega fylgifiska jarðhitavinnslu. Hver einasti jarðskjálfti geti haft góð eða slæm áhrif á kerfið. „Við höfum engar beinar áhyggjur.“
Vísindamenn HS Orku eru í vísindaráði almannavarna og fylgst er vel með stöðu mála vegna stöðunnar á Reykjanesskaga. Jóhann segir fyrirtækið hafa verið á sérstöku varðbergi síðustu 14 mánuði og eru starfsmenn því vel á tánum. Þegar jarðskjálftahrinan hófst í síðustu viku var varúðarstigið hækkað og hafa neyðaráætlanir verið skoðaðar að undanförnu.