Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands hafa náð saman um breytingar á kjarasamningi um lífeyrismál. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Kjarasamningur SA og ASÍ um lífeyrismál er stofnskjal og bakhjarl lífeyrissjóða á almennum vinnumarkaði.
„Breytingarnar felast í umgjörð fyrir hugsanlega afturköllun tilnefningaraðila á umboði stjórnarmanna, auk skerpingar ákvæða um sjálfstæði stjórnarmanna í lífeyrissjóðum,“ segir í tilkynningunni.
Nýtt ákvæði þar sem sjálfstæði stjórnarmanna er áréttað hljóðar svona:
Stjórnarmenn skulu rækja skyldur sínar af heilindum, hafa möguleika á að verja þeim tíma til stjórnarstarfa sem slík seta krefst og taka sjálfstæðar ákvarðanir í hverju máli fyrir sig.
Tvö ákvæði um hugsanlega afturköllun tilnefningaraðila á umboði stjórnarmanna bætast við samninginn og varða formlegt ferli og aðkomu fulltrúaráðs lífeyrissjóða að þeirri ákvörðun:
Tilnefningaraðila er heimilt að afturkalla umboð stjórnarmanns á grundvelli laga og samþykkta lífeyrissjóðs. Tilkynna skuli stjórn sjóðsins með formlegum hætti rökstudda ákvörðun með tilvísun í viðeigandi lagaákvæði, samþykktir og reglur.
Afturkalli tilnefningaraðili umboð stjórnarmanns skal fulltrúaráð staðfesta þá ákvörðun ásamt tilnefningu nýs stjórnarmanns fram að næsta ársfundi.