„Aðgerðir MS voru þaulskipulagðar og þeim ætlað að koma keppinautum MS út af markaði og gera þá ógjaldfæra með alvarlegum afleiðingum fyrir starfsfólk þeirra, lánardrottna og eigendur. Kalla verður eftir ábyrgð þeirra sem stýrðu þessari aðför með svo illgjörnum og óvægnum hætti.“
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Ólafi M. Magnússyni, fyrrverandi eiganda mjólkurbúanna KÚ og Mjólku. Hann segir að dómur Hæstaréttar þess efnis að Mjólkursamsalan þurfi að greiða ríkissjóði 480 milljónir króna vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu sé forsvarsmönnum og eigendum mikils virði eftir 16 ára erfiða baráttu.
Ólafur segist í samtali við mbl.is vera búinn að höfða skaðabótamál og stefna Mjólkusamsölunni vegna Mjólku og KÚ. Málið verði tekið fyrir fljótlega eftir páska.
Dómurinn var kveðinn upp í Hæstarétti á fimmtudag en í honum kemur fram að Mjólkursamsalan hafi mismunað viðskiptaaðilum með ólíkum skilmálum í sams konar viðskiptum og þannig veikt samkeppnisstöðu þeirra og með því brotið með alvarlegum hætti gegn samkeppnislögum.
Málið hófst árið 2012 þegar KÚ mjólkurbú sendi athugasemd til Samkeppniseftirlitsins árið 2012 um muninn á verði sem KÚ mjólkurbú þurfti að greiða fyrir hrámjólk, sem er grundvallarhráefni við framleiðslu á mjólkurvörum, samanborið við aðila tengda Mjólkursamsölunni. Hafði KÚ af misgáningi fengið sendan reikning sem átti að fara til Mjólku.
Í yfirlýsingunni frá Ólafi kemur fram að meint hagræðing, sem eigi að hafa náðst vegna undanþáguákvæða frá samkeppnislögum, hafi ekki skilað sér í vasa neytenda og því síður til bænda.
„Verð á mjólkurvörum er síst lægra hér landi en á erlendum mörkuðum þar sem fyrirtæki bænda hafa ekki notið þeirrar gríðarlegu verndar sem MS hefur notið á undanförnum árum með tollavernd og undanþáguheimildum frá samkeppnislögum, í raun einokunarstöðu. MS, sem er eitt þýðingarmesta afurðasölufélag bænda og flaggskip þeirra í áratugi, stendur eftir stórlaskað, orðspor þess og traust hefur orðið fyrir miklum skaða, allt lausafé uppurið og félagið því glímt við lausafjárvanda um nokkurra ára skeið,“ kemur fram í tilkynningunni.
Ólafur segir að nauðsynlegt sé að fella þegar í stað undanþáguheimildir frá samkeppnislögum úr gildi:
„Ábyrgð stjórnvalda í þessu máli er mikil þar sem undanþáguheimildir frá samkeppnislögum eru ástæða þess, að sögn stjórnenda MS, að þeir brutu samkeppnislög með svo alvarlegum hætti gagnvart keppinautum sínum „í góðri trú“. Farið hefði betur á því hjá stjórnendum MS að biðjast afsökunar á framgöngu sinni gagnvart íslenskum neytendum og þeim sem þeir brutu alvarlega á, í stað þess að reyna enn og aftur að slá ryki í augu almennings með yfirlýsingu um „meint hagræði“.“